LÓÐAÞJÓNUSTA HLYNS Fá tilboð →

DREN OG
FRÁRENNSLISLAGNIR

Grunnurinn að heilbrigðu húsi og lóð

Við sérhæfum okkur í dren- og frárennslislausnum sem vernda hús og grunn til framtíðar.

DREN OG FRÁRENNSLI SKIPTA SKÖPUM

Verndum grunninn og húsið rétt

Rétt unnið dren- og frárennsliskerfi er forsenda þess að hús og lóð standi af sér íslenskar aðstæður. Það verndar húsið, grunninn og lóðina til framtíðar og kemur í veg fyrir kostnaðarsamar skemmdir.

  • Við tökum að okkur öll dren- og frárennslisverkefni, stór sem smá. Hvort sem um er að ræða nýlagnir, endurnýjun á eldri kerfum, jarðvegsvinnu eða heildarlausnir byrjum við á góðu ástandsmati og ráðgjöf svo þú vitir nákvæmlega hvað þarf að gera.
  • Við búum yfir öflugum tækjakosti og mikilli reynslu í framkvæmd slíkra verka. Með okkur starfar löggiltur pípari sem sér um að lagnir og tengingar séu unnar samkvæmt gildandi reglum og kröfum.
  • Við leggjum metnað í snyrtilegan frágang og skilum af okkur verki sem við erum stolt af. Markmið okkar er einfalt: traust vinna, góð samskipti og sanngjarnt verð fyrir vandaða þjónustu.

Við vinnum aðallega á höfuðborgarsvæðinu en tökum einnig að okkur stærri verk á Suðurnesjum og á svæðinu í kringum Hveragerði og Selfoss.

AF HVERJU VELJA OKKUR?

12 ára reynsla

Í garð- og jarðvinnu

Fagmennska

Vönduð vinnubrögð

Fjölbreytt þjónusta

Lausnir fyrir flest verk

Samkeppnishæft

Góð verð og góð þjónusta

ALGENGAR SPURNINGAR

Hvaða drenverk takið þið að ykkur?

Við tökum að okkur ný dren- og frárennsliskerfi, endurnýjun eldri kerfa, uppgröft, jarðvegsvinnu og frágang að lokinni framkvæmd.

Sjáið þið um bæði dren og frárennslislagnir?

Já, við tökum að okkur bæði dren og frárennslislagnir og sjáum um lausnir sem henta húsinu og lóðinni.

Er löggiltur pípari með í verkefnum?

Já, með okkur starfar löggiltur pípari sem sér um að lagnir og tengingar séu unnar samkvæmt gildandi reglum og kröfum.

Á hvaða svæði vinnið þið?

Við vinnum aðallega á höfuðborgarsvæðinu en tökum einnig að okkur stærri verk á Suðurnesjum og í kringum Hveragerði og Selfoss.

Fáðu frítt tilboð í dren og frárennslislagnir

Hafðu samband og við förum yfir verkefnið með þér án skuldbindingar.

Senda fyrirspurn →